"Býsna strembin nótt" í aftakaveðri í Blönduhlíð
Mikið óveður gekk yfir í Blönduhlíð í Skagafirði í nótt. Að sögn Smára Haraldssonar í Hjarðarhaga var þetta „býsna strembin nótt“ en hjá honum splundruðust rúður, grindverk mölvaðist, hestakerra og jeppi fuku útaf heimkeyrslunni og kyrrstæður flutningabíllinn fauk á hliðina.
Þegar Feykir sló á þráðinn til Smára seinni partinn í dag var hann að enda við að koma flutningabílnum á réttan kjöl og sagði hann daginn hafa farið í lagfæringar og björgunaraðgerðir. Hann segist þó ekki hafa þurft að kalla út björgunarsveit, „enda eru nágrannarnir og sérsveitin á Steypustöðinni mín björgunarsveit, þeir komu með krana til að rétta flutningabílinn af.“
Smári segir austanáttina hafa blásið ansi skarpt í nótt. „Ég er þéttur á velli og það var ekki stætt fyrir mig. Þá vildi ég heldur vera úti í norðan stórhríð í Fljótunum, enda vanur því.“
Aðspurður um tjón á öðrum bæjum sagðist Smári vita til þess að rúður hefðu sprungið í bílum á Hofdölum. Góðu heilli urðu ekki slys á fólki eða skepnum, en Smári sagðist þó eiga eftir að telja stóðið hjá sér, en hann var á leið til að gefa þegar Feykir ræddi við hann.