Af hverju að baka um helgina ef þú getur látið aðra um það?

Það er vaninn hjá mér fyrir hverja helgi að setja inn uppskrift af einhverju helgargóðgæti en því miður verður enginn uppskrift fyrir þessa helgina. En fyrir þá sem hafa fylgst með hér á feykir.is og hugsað í hvert skipti "best að baka þessa um helgina" en ekki látið verð af því, þá er um að gera að skella sér á kaffihlaðborðið á Samgönguminjasafninu í Stóragerði sunnudaginn nk. milli 14-17, því þar verður hægt að smakka á öllum kökuuppskriftunum sem ég hef deilt með ykkur.

Einnig verður vinarlegur og krúttlegur handverksmarkaður á sama tíma þar sem gler-, hekl- og prjónavörur verða á góðu verði.

kökuhlaðborð 

Það er því tilvalið að taka rúnt í sveitina, kíkta á bílasafnið og gæða sér á dýrindis tertum á sunnudaginn.

Sjáumst vonandi hress og kát, eins og alltaf:) 

Sigga sigga sigga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir