Dætur Satans gefa út disk

Hin skagfirsk ættaða hljómsveit Dætur Satans hafa gefið út diskinn "Dögun" en á honum má finna 12 lög eftir Skagfirðingana Þórólf Stefánsson og Magnús H. Helgason. Ljóðin á disknum eru flest eftir Dr. Sigurð Ingólfsson.

Upptökur fóru fram í Studio Benmen á Sauðárkróki og meðal spilara á disknum er Rögnvaldur Valbergsson sem lék með á Hammond.

Að sögn Dætranna er hægt að nálgast eintak með því að hafa samband við Magnús í síma 4712590 eða 8454198 eða senda póst á magnushh@simnet.is. Diskurinn kostar litlar 2000 krónur.

Ljósmyndir af Drangey og „Kerlingunni“ prýða umslag disksins og er Hjalti Árnason myndasmiðurinn.

Á YouTube er hægt að nálgast nokkur lög af diskinum og hér fyrir neðan er eitt gott föstudagslag.

http://www.youtube.com/watch?v=FdP8BIc90Ng&feature=channel

Fleiri fréttir