Dagskrá Jónsmessuhátíðar tilbúin

Dagskrár hinnar árlegu Jónsmessuhátíðar á Hofsósi liggur nú fyrir og að vanda er fjölbreytt dagskrá alla helgina. Í boði verður firmakeppni, göngutúr, kjötsúpa, fótboltamót, góðakstur dráttarvéla og margt fleira.

 Dagskrá hátíðarinnar er sem hér segir:

Föstudagur 19. júní

kl 17:00 Firma- og bæjarkeppni Svaða á Hofgerðisvelli. Tilkynna þarf þátttöku á halegg@simnet.is.

Kl. 18:00 Jónsmessuganga. Gengið frá Bæ á Höfðaströnd inn í Hofsós. Leiðsögumaður er Haukur Björnsson. Mæting við Höfðaborg.

19:00-21:30 Íslensk kjötsúpa. (Ekki þarf að panta).

Kl. 21:00 Sundlaugarpartý fyrir unglingana. (Nánar auglýst í Sjónhorni).

Kl. 21:30 Kvöldvaka, söngur Aðalbjörg Rósa Indriðadóttir, ræðumaður, Guðný Axelsdóttir kynnir, Hjalti og Lára taka lagið.

Opið hús í Höfðaborg. Halli og Þórunn leika fyrir dansi. Aldurstakmark 18 ára.

Laugardagur 20. júní

Kl. 10:30 Knattspyrnumót á Hofsósvelli. Knattspyrna karla og kvenna. Keppt í tveimur deildum; 1. deild og úrvalsdeild. Tilkynna þarf þátttöku á netfangið signus007@gmail.com eða hjá Magnúsi í síma 866-7463, fyrir kl. 23.00 á föstudagskvöld. Þátttökugjald 10.000 kr. á lið.

Kl. 11:00 - 14:00 - Myndasýning Finns Sigurbjörns rúllar á tjaldi.

12:00 - Tjaldmarkaður. Borðapantanir í síma 821-6332.

12:00 - 16:00 - Grillveisla. Fríar pylsur og drykkir fyrir börnin.

13:00 - Leiktæki fyrir börn (Nánar auglýst í Sjónhorni).

13:00 - Hópreið Hestamannafélagsins Svaða.

14:00 - Góðakstur á dráttarvélum að hætti Pardus. Skráning og nánari upplýsingar í síma

868-8209 og 847-8303.

23:00 - Stórdansleikur í Höfðaborg. ljómsveitin Von og Magni Ásgeirs leika fyrir dansi.

16 ára aldurstakmark. Munið áfengislögin.

Sunnudagur 21. júní

Dagsferð um slóðir Guðrúnar frá Lundi. Farið frá Sauðárkróki kl. 09:00 og Hofsósi kl. 09:30. Skráning  og  upplýsingar hjá Kristínu í síma 8673164.

Fleiri fréttir