Dagur kvenfélagskonunnar

Dagur kvenfélagskonunnar er á morgun þann 1. febrúar. Af því tilefni ætlar Kvenfélag Sauðárkróks að hafa opið hús í Borgartúni 2 (Skátaheimilinu) frá kl. 17,00 til 21,00 þann dag. Hugmyndin er að þangað geti komið konur og karlar og fengið tilsögn í að setja í rennilása, stytta pils og buxur, fatabreytingar, prjóna sokkahæla og annað í þeim dúr. Hjálpar þá hver öðrum eftir kunnáttu og getu.

Einnig getur fólk komið með sitt handverk til að vinna, sýna sig og sjá aðra. Saumavélar og það sem til þarf verður á staðnum.

Allir eru velkomnir, utan kvenfélaga sem innan.

Fleiri fréttir