Dagur leikskólans í Skagfirðingabúð
Dagur leikskólans var haldinn hátíðlegur um land allt sl. miðvikudag og í tilefni dagsins tóku nemendur leikskólans Ársala á Sauðárkróki nokkur lög í Skagfirðingabúð og kom fjöldi fólks í búðina til að hlusta á kórsöng barnanna.
Tilgangurinn með deginum er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Hér eru nokkrar myndir frá viðburðinum.