Dagur Þór Baldvinsson ráðinn í stöðu yfirhafnarvarðar

Dagur Þór Baldvinsson. Mynd: Skagafjörður.is.
Dagur Þór Baldvinsson. Mynd: Skagafjörður.is.

Dagur Þór Baldvinsson hefur verið ráðinn í stöðu yfirhafnarvarðar hjá Svf, Skagafirði en hann var valinn úr hópi sjö manna. Dagur Þór er menntaður sjávarútvegsfræðingur frá Háskólanum á Akureyri. Dagur starfar hjá Háskólanum á Hólum og er umsjónarmaður fiskeldistilrauna í Verinu á Sauðárkróki, ásamt því að vera með yfirumsjón með verknámi í diplómanámi fiskeldisdeildar skólans.

Á vef Svf. Skagafjarðar segir að Dagur hafi víðtæka reynslu sem sjómaður og var m.a. vinnslustjóri hjá Brim þar sem hann hafði mannaforráð. Yfirhafnarvörður starfar hjá Hafnarsjóði Skagafjarðar sem á og rekur tvær hafnir í Skagafirði, á Sauðárkróki og á Hofsósi. Helstu verkefni yfirhafnarvarðar eru daglegt eftirlit og stjórnun á hafnarsvæðum, eftirlit með skipum, móttaka þeirra, skráning og afgreiðsla. Þá hefur hann umsjón með hafnarmannvirkjum, hafnarvog og vigtun afla. stefnumótun og áætlanagerð, gæða- og þjónustustjórnun o.fl.  

Sjá nánar á skagafjordur.is

Fleiri fréttir