Dalí, Bjartmar Guðlaugsson og Gillon á Gærunni

Hljómsveitin Dalí, Bjartmar Guðlaugsson og Gillon spila á Gærunni tónlistarhátíð á Sauðárkróki 13. – 15. ágúst. „Hljómsveitin Dalí er ný hljómsveit og er hugarfóstur söngkonunnar og bassaleikarans Erlu Stefánsdóttur,“ segir í fréttatilkynningu frá Gæruliðum.

Í tilkynningunni segir að Erla útskrifaðist úr söngdeild Tónlistarskóla FÍH árið 2011 og hefur verið iðin í íslensku tónlistarlífi síðan. Erla stofnaði Dalí síðastliðið haust og flytur hljómsveitin tónlist og texta eftir Erlu.

„Með henni í Dalí eru þeir Helgi Reynir Jónsson á gítar og Sigfús Óttarsson á trommur. Búast má við sannkallaðri tónlistarveislu á Gærunni í ár.“

https://youtu.be/NQftS3kLUAQ

Bjartmar Guðlaugsson er íslenskur tónlistarmaður, skáld og myndlistarmaður sem hóf að gefa út tónlist á níunda áratug 20. aldar.

„Flestir Íslendingar þekkja mörg lög eftir hann eins og „Súrmjólk í hádeginu“ (og cheerios á kvöldin), „Týnda kynslóðin“, „Fimmtán ára á föstu“, „Sumarliði er fullur“ o.fl. Bjartmar var einn vinsælasti tónlistarmaður á Íslandi á níunda áratugnum, sló í gegn árið 1987 þegar hann gaf út vinsælustu plötu sína „Í fylgd með fullorðnum“. Platan var næstsöluhæsta plata ársins. Plötunni fylgdi hann eftir að ári með „Með vottorð í leikfimi“.

„Tími þverslaufupoppsins er liðinn,“ sagði Bjartmar í viðtali við Þjóðviljann árið 1986 og hafði nú sýnt fram á það svo ekki var um að villast. Það er mikil tilhlökkun hjá okkur í Gærunni að fá þvílíkan höfðingja í heimsókn til okkar í ágúst!“

https://youtu.be/cdBPRSfdQOE

Gillon er skagfirskur tónlistarmaður og ljóðskáld sem hefur gefið út fimm ljóðabækur og þrjár hljómplötur. Hann spilar á kontrabassa í hljómsveitinni Contalgen Funeral.

Gillon spilar á kassagítar á sólóistakvöldi Gærunnar í ár, sem verður fimmtudagskvöldið 13. ágúst.

https://youtu.be/LB4t9DyXN88

Gæruböndin sem búið var að kynna fyrir eru:
Lockerbie, VIO, Óskar Harðar,
Lára Rúnars, The Roulette, Axel Flóvent,
Dimma og Stafrænn Hákon

Fleiri fréttir