Dansmaraþon 10. bekkjar hafið

Hið árlega og sívinsæla dansmaraþon 10. bekkinga Árskóla á Sauðárkróki hófst kl. 11 í morgun og er nú komið að árgangi 2001 að teygja skankana í sólarhring. Danssýning allra nemenda klukkan 17:00 í íþróttahúsinu.

Dansað er í matsal skólans fram að danssýningu sem fram fer í íþróttahúsinu og eftir að balli lýkur í kvöld. Kaffihús verður opið frá klukkan 15:30 – 22:00 en þar er hægt að fá rjúkandi kaffi ásamt heimabökuðu bakkelsi. Eins og áður gefst bæjarbúum kostur á að spara sér eldamennsku í kvöld og panta sér mat, annað hvort í heimsendingu eða í matsal skólans. Í boði er svínakjötspottréttur með hrísgrjónum og brauði. Tekið er við ðpöntunum í síma 4551152 frá klukkan 15:00 – 18:00 í dag.

Fleiri fréttir