Darrel Flake til Tindastóls
Hinn reyndi körfuboltamaður Darrel Flake sem lengi hefur leikið á Íslandi er genginn til liðs við Tindastól. Darrel sem er 33 ára er með íslenskt ríkisfang og lék með Þór Þorlákshöfn síðasta keppnistímabil en hann kom til KR árið 2002 og hefur leikið með Fjölni og Skallagrími.
Forráðamenn körfuboltadeildar Tindastóls eru að vinna í því að fá erlendan leikmann í sínar herbúðir enda hefur stefnan verið sett í úrvalsdeildina að ári.