Deildarmeistarar taka á móti Hetti í kvöld

Deildarmeistarar Tindastóls í körfuknattleik karla spila síðasta leik tímabilsins við Hött í Síkinu á Sauðárkróki í kvöld. Til stendur að skapa rokna stemmningu í íþróttahúsinu og eru allir hvattir til að mæta, styðja strákana og sjá þá taka á móti deildarbikarnum.

Bárður Eyþórsson þjálfari Tindastóls sagði tilhlökkun vera fyrir því að klára tímabilið og er jafnframt gaman að mæta til leiks með gulltryggt sæti í úrvaldeildinni á næsta ári. „Ég vona bara strákarnir komi ekki of afslappaðir til leiks, líkt og í síðasta föstudag, heldur gefi allt í leikinn og klári tímabilið almennilega,“ segir Bárður í nýjasta tölublaði Feykis.

Varaformaður KKÍ Guðbjörg Norðfjörð mætir á svæðið til að afhenda bikarinn að leik loknum, ásamt Skagfirðingnum Rúnari Birgi Gíslasyni. Formaður körfuknattleikssambandsins, Hannes S. Jónsson, segir í samtali við Feyki að hann hefði gjarnan vilja vera með annað kvöld en kemst því miður ekki þar sem hann verður staddur erlendis.

 

Fleiri fréttir