,,Djúphreinsum húðina okkar!"

Fanney Gunnarsdóttir er 21 árs gömul og búsett í Reykjavík. Hún stundar nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti þar sem hún lærir verklega snyrtifræði og bóklegt nám með henni. Hún stefnir svo á að byrja á samningnum í sumar.

Hver eru þín helstu áhugamál?

Snyrtifræðin, útivera og samvera með fjölskyldunni.

11006046_10152588471077084_246895401_n

Hver er þín daglega förðunarrútína?

Ég byrja auðvitað alltaf daginn á því að strjúka yfir húðina með þvottapoka og andlitsvatni. Þetta er alveg lykilatriði til að farðinn komi sem allra best út.
Ég nota andlitskrem sem kemur til móts við mína blönduðu húðgerð en veitir samt vörn í þessu kalda vetrarlofti.

1. Næst á dagskrá er primerinn. Ég nota Smashbox Photo Finish Light, hann er gordjöss.

2. Svo set ég á mig Teint Idole Ultra farðann frá Lancomé.

3. Svo ég fletjist nú ekki út þá nota ég púðurbronzer frá H&M. Hann er ódýr og bara ljómandi fínn. Ég set hann undir kinnbeinin og dreg í átt að munnviki, mér finnst líka alltaf gott að skyggja við hárlínu á enni.

4. Þá þarf bara að toppa þetta með smá blush, en ég nota kinnalit frá NoName.

5. Augabrúnirnar eru svolítið misjafnar eftir því hvernig skapi ég er í. Ég er frekar opin þegar kemur að þeim, stundum er ég í stuði fyrir sterkar augabrúnir en aðra daga er ég í einhverju „natural“ stuði og hef þær bara léttar og góðar. Augabrúnir eu auðvitað eitthvað sem setur mjög mikinn svip á förðunina og mér finnst mikilvægt að hver fylgi sinni náttúrulegu lögun. Maður á ekki að vera í stöðluðu móti þegar kemur að augabrúnum. En ég nota ýmist augabrúnablýantinn frá H&M eða púður skugga frá Bare Minerals.

6. Ég enda þetta á augnhárauppbrettara sem er nauðsynlegur fyrir mín smágerðu augnhár, og set svo maskarann Doll Eyes frá Lancomé.

7. Varirnar eiga það oft til að verða útundan hjá mér, en ég á æðislegan varasalva sem heitir Varagaldur og hann verður mjög oft fyrir valinu.

Untitled

Hver er þín uppáhalds förðunarvara?

Mín uppáhalds förðunarvara þessa stundina er klárlega Teint Idole Ultra farðinn frá Lancomé. Hann endist allan daginn og heldur öllum olíuglans niðri. Hann þekur svo fallega og mátulega mikið. Þetta er alveg ekta farði fyrir blandaða og feita húðgerð.

uppáhalds

Hvenær byrjaðir þú að farða þig?

Ég held það hafi verið svona í kringum fermingu.

Hvað er þitt versta „förðunarslys“?

Ætli það hafi ekki verið svona fyrstu eyeliner tilraunirnar. Full mikill eyeliner fyrir 13 ára píu...

Hvað er þitt helsta náttúrulega leyndarmál að betra útliti?

Það að hreinsa húðina kvölds og morgna og nota rétt krem er klárlega eitthvað sem hefur mikil áhrif á áferð húðarinnar. Heilbrigð og falleg húð = heilbrigt og fallegt útlit. Þarna spilar auðvitað mataræðið inn í.
Mér finnst gott að taka inn góðar olíur og þrátt fyrir að ég sé með blandaða húð og fái glans í andlitið þá verður oft önnur húð á líkamanum þurr, sérstaklega á veturna.

11056755_10152588471082084_652830695_n

Lítur þú upp til einhvers einstaklings þegar kemur að förðun?

Ég held að ég geti ekki valið einhvern einn einstakling. Mér finnst alltaf gaman að fylgjast með youtube bloggurum. Real Tecniques og Tanya Burr eru skemmtilegar og svo bara vafrar maður út um allt.

Ef þú mættir velja hvern sem er í heiminum til að kíkja í snyrtitöskuna hjá, hvern myndir þú velja?

Úff, þetta er nú ekki auðvelt val. Það væri náttúrulega gaman að kíkja hjá makeup-artistanum hennar Lady Gaga, þar er örugglega mjög fjölbreytt og spennandi makeup. Svo er hún Emma Watson alltaf glæsileg, en hún er ein af andlitum Lancomé.

Lady Gaga 2013Elle Style Awards 2014 - Red Carpet Arrivals

Eitthvað að lokum?

Djúphreinsum húðina okkar! Allar húðgerðir þurfa djúphreinsun. Með reglulegri djúphreinsun sjáum við til þess að öll fínu kremin sem að við berum á okkur komist niður til húðarinnar og geri sitt gagn!

Rakakrem/dagkrem
Orðið „rakakrem“ heyrist mikið í umræðu um snyrtivörur og húðumhirðu. Þetta er eitthvað sem að margir segja að þeir noti og margir sækjast eftir þegar þeir fara í verslanir í leit að kremum.
Staðreyndin er sú að fáar húðgerðir þola að fá eingöngu rakakrem, sérstaklega á veturnar.
Þeir sem þola að nota rakakrem að sumri til ættu nær undantekningarlaust að skipta yfir í örlítið nærandi krem yfir vetrarmánuðina til að verjast gegn frostinu og forðast yfirborðsþurrk sem veldur svo oft bólum.

Fleiri fréttir