Dómaranámskeið í körfuknattleik

Dómaranámskeið í Körfuknattleik verður haldið á Sauðárkróki dagana 20. og 21. janúar nk. Að námskeiðinu stendur Unglingaráð í samvinnu við KKÍ og verður það án endurgjalds.

Samkvæmt heimasíðu Tindastóls verður kennslan bæði bókleg og verkleg og ætlast er til þess að allir iðkendur í 10. bekk og upp að meistaraflokki taki þátt í námskeiðinu, enda litið á það sem hluta af uppeldi körfuknattleiksiðkenda hjá deildinni að þeir sæki dómaranámskeið. Sérstökum dómarahóp verður komið upp hjá í framhaldi af námskeiðinu sem skiptir því á milli sín að dæma á fjölliðamótum.

Námskeiðið verður einnig opið fyrir alla aðra, s.s. foreldra, meistaraflokksmenn og þá sem áhuga hafa á að rifja upp reglurnar og leggja körfuknattleiksdeildinni lið með því að dæma, því alltaf er þörf á hæfum dómurum í starfinu.

 

Drög að dagskrá námskeiðsins er eftirfarandi:

  • Laugardagur 20. janúar
  • Kl. 13 - 18 Bóklegur tími
  • Sunnudagur 21. janúar
  • Kl. 09 - 10 Skriflegt próf
  • Kl. 10 - 13 Verklegar æfingar í sal

 

 

Fleiri fréttir