DÓMARASKANDALL !! Verkefnastjóri dómaraverkefnis óskast
Unglingaráð Tindastóls í körfubolta hyggst setja á laggirnar dómaraverkefni sem hefur þann tilgang að fjölga dómurum á svæðinu og að allir leikir á vegum körfuknattleiksdeildar verði dæmdir af dómurum með grunnþekkingu á dómgæslu.
Á Tindastóll.is segir að dómgæsla hafi ekki verið vinsælt verkefni og oft erfitt að fá einstaklinga til að taka að sér að dæma leiki í fjölliðamótum, en fyrst og fremst er verið að horfa til þess að fjölliðamótin verði dæmd af dómurum sem sótt hafa námskeið og hafi ákveðna grunnkunnáttu í störfum dómara.
Unglingaráðið leitar nú að verkefnastjóra fyrir dómaraverkefnið en hlutverk hans verður að halda utan um dómarahóp körfuknattleiksdeildar, manna dómgæslu í þeim leikjum sem körfuknattleiksdeildin þarf að manna, halda utan um dómaranámskeið og sinna dómaramálum af áhuga. Um afar gefandi sjálfboðaliðastarf er að ræða en viðkomandi mun starfa með unglingaráði að framgangi verkefnisins.
Áhugasamir geta haft samband við Karl Jónsson í unglingaráði, í síma 844 2461 eða á netfanginu coachkarl@internet.is.
Sjá nánar á Tindastóll.is