Draumaraddir halda til Eistlands

Alexandra Chernyshova söngkona er á förum til Eistalands á morgun, fimmtudaginn 13. október, ásamt fimm stúlkum úr söngskóla hennar. Þar munu þær munu þær heimsækja tónlistarskóla þar í landi, ásamt lista- og tónlistarskóla frá Lettlandi.

Verkefnið sem þessir þrír skólar eru þátttakendur í kallast „Beauty of the Nordic art involves, inspires and unites“ og er styrkt af Nordplus. Nemendur skólana heimsækja hvor aðra og þá er mikið sungið og boðið upp á ýmiskonar fræðslu. „Í sameiningu könnum við hvað tónlist og menning okkar á sameiginlegt og verður áhugavert að sjá hvort eitthvað sé líkt með þeim þrátt fyrir landfræðilegu fjarlægðina á milli landana,“ sagði Alexandra í samtali við Feyki.

Að sögn Alexöndru eru stúlkurnar sem halda út til Eistlands á aldrinum 9-15 ára og eru tvær þeirra úr Árskóla á Sauðárkróki, tvær úr Varmahlíðarskóla og ein úr Grunnskólanum Austan vatna á Hofsósi. Þær heita Inga Margrét Jónsdóttir, Telma Björk Gunnarsdóttir, Bergþóra Huld Björgvinsdóttir, Ólöf Birna Andradóttir og Stefanía Malen Halldórsdóttir.

Skólinn sem þær heimsækja er í Lihula í Eistlandi og er búið að skipuleggja fyrir þær fjölbreytta og skemmtilega dagskrá. Þær fara á ýmiskonar kynningar, námskeið og leiki. Stúlkurnar koma til með að gista hjá fjölskyldum tveggja kennara úr skólanum í Lihula og fá þá að upplifa hversdagslegt eistlenskt fjölskyldulíf. Á föstudagskvöldinu verða svo haldnir stórtónleikar og þá munu Alexandra og stúlkurnar stíga á svið og syngja fyrir fjölda manns þar sem borgarstjóri Lihula verður í áhorfendahópi.

Alexandra og stúlkurnar snúa aftur til Íslands á kvöldi þess 17. október og hitta svo vini sína frá Eistlandi og Lettlandi á ný þegar skólarnir heimsækja Skagafjörð vorið 2012.

Fleiri fréttir