Draupnir/Þúfur keppir í KS-Deildinni í vetur

Meistaradeild Norðurlands hefur nú kynningu á liðum KS-Deildarinnar 2016 en keppnin hefst þann 17. febrúar nk. Fyrsta liðið sem kynnt er til leiks er Draupnir/Þúfur. Liðstjóri er Mette Mannseth og með henni í liði eru Gísli Gíslason, Barbara Wenzl og Artemisia Bertus en hún kemur ný inn í þetta lið. 

„Lið Draupnis endaði í 3 sæti í liðakeppninni í fyrra og ætla þau sér eflaust stærri hluti í ár,“ segir í fréttatilkynningu. 

Keppniskvöld KS-Deildarinnar eru:

  • 17. febrúar - Fjórgangur
  • 2. mars - Fimmgangur
  • 16. mars - Tölt
  • 30. mars - Gæðingafimi
  • 6. apríl - Slaktaumatölt og skeið

 

Fleiri fréttir