Drengjaflokksstrákarnir ósigraðir

Drengjaflokkur Tindastóls hélt sigurgöngu sinni áfram um síðustu helgi, þegar þeir lögðu Valsmenn á heimvelli  í sínum fjórða leik í Íslandsmótinu í körfubolta. Staðan í leikslok 90-67.

 

Pálmi Geir fór í 40 stigin annan leikinn í röð og er kappinn funheitur þessa dagana. Pétur Rúnar setti 14, Ingvi Rafn 13, Friðrik Þór 10, Pálmi Bjarni 7, Birkir Snær 4 og Sigurður Páll 2.
Stöðuna í drengjaflokki má sjá HÉR.

Einnig var mikið að gera í yngri flokkunum um síðustu helgi en þá léku 7. flokkur stúlkna, 9. flokkur drengja og 10. flokkur stúlkna og er nánar hægt að fræðast um þá á Tindastóll.is.

Fleiri fréttir