Dýrbítar drápu kindur á Sporði

Tveir hundar, tík og stálpaður hvolpur, drápu tvær kindur og særðu þá þriðju á bænum Sporði í Línaakradal í Húnaþingi vestra um miðjan dag sl. þriðjudag. Að sögn Þorbjörns Ágústssonar, bónda á Sporði, þurfti að aflífa þriðju kindinni sem var illa bitin.
Hundarnir voru frá nærliggjandi bæ og hefur Þorbjörn það frá lögreglunni á Blönduósi að búið sé að lóga tíkinni. Aðspurður um hvort hundarnir hafi áður sýnt ógnandi tilburði svarar hann því játandi.
„Þeir voru búnir að bíta konu til blóðs og reyndu einu sinni að ráðast á mig. Svo var brúarflokkur að vinnu hér skammt frá bænum og tíkin sýndi þeim tennurnar. Það var bara ekkert gert í þessu fyrr en nú,“ segir hann.