Dýrin á Fróni eftir Alfreð Guðmundsson komin út :: Útgáfufögnuður nk. laugardag

Alfreð Guðmundsson, höfundur Dýrin á Fróni, og útgáfustjórinn Guðmundur sonur hans. Þeir bjóða til teitis í tilefni útgáfu bókarinnar nk. laugardag. Aðsendar myndir.
Alfreð Guðmundsson, höfundur Dýrin á Fróni, og útgáfustjórinn Guðmundur sonur hans. Þeir bjóða til teitis í tilefni útgáfu bókarinnar nk. laugardag. Aðsendar myndir.

Útgáfufögnuður bókarinnar Dýrin á Fróni, eftir Alfreð Guðmundsson grunnskólakennara á Króknum, verður haldinn næstkomandi laugardag í sal Árskóla á Sauðárkróki og eru öll þau sem áhuga hafa að koma og kynna sér bókina og næla sér í eintak hjartanlega velkomin, segir Alfreð, og bendir á að í boði verður kaffi og kruðerí í tilefni dagsins. 


Alfreð Guðmundsson, með
sína fyrstu bók, Dýrin á Fróni.

Feykir sagði frá því á dögunum að ljóðabókin Dýrin á Fróni hefði komið út en um er að ræða myndskreytta vísnabók um nokkur algeng íslensk dýr fyrir alla aldurshópa.

Alfreð Guðmundsson þekkja allir Króksarar enda verið starfandi grunnskóla- og íþróttakennari til margra ára í skólum bæjarins. „Ég er fæddur og uppalinn á Króknum, sonur Guðmundar Helgasonar og Ernu Ingólfsdóttur. Ég hef verið í íþrótta- og æskulýðsmálum frá því að ég man eftir mér og kennt íþróttir í aldarþriðjung. Eitt af mínum aðaláhugamálum er vísna- og kvæðagerð, en ég hef ort ansi mörg tækifærisljóð í gegnum tíðina og kollegar mínir kalla mig Skólaskáldið í gamni,“ segir Alfreð.

Bókin hefur að geyma 42 myndskreyttar vísur um fjórtán algeng íslensk dýr. „Vísurnar er samdar í bragarhætti er nefnist langhenda en hún hefur í öllum braglínum einu atkvæði meira en ferskeytla. Listamaðurinn Jérémy Pailler sá um myndskreytingarnar og uppsetningu bókarinnar,“ segir Alfreð sem sá um útgáfu hennar undir dyggri stjórn sonarins Guðmundar Alfreðssonar en Prentmiðlun ehf. sá um prentunina.

Það var fyrir tveimur árum sem Alfreð fékk þá hugmynd að gera vísur um íslensk dýr. Lagði hann upp með það í byrjun að semja eina vísu um karldýrið, aðra um kvendýrið og þá þriðju um afkvæmi þeirra.

„Markmiðið var að nota íslensk heiti á dýrunum, svo sem hrútur, ær og lamb. Einnig vildi ég gefa flestum dýrunum nafn, ásamt því að lýsa einhverjum af séreinkennum þeirra. Síðsumars 2021, í miðjum kóvíðfaraldrinum, fór ég að skoða það alvarlega að gefa efnið út. Vinir og vandamenn hvöttu mig til útgáfunnar. Um haustið bætti ég fleiri dýrum við þannig að þau voru orðin alls fjórtán talsins. Um það leyti fór ég að leita að listamanni til að myndskreyta bókina. Mér var bent á frábæran franskan listamann, Jérémy Pailler en hann hefur haft sterkar tengingar við Skagafjörð. Um miðjan nóvember hafði ég samband og hann tók að sér myndskreytingarnar og einnig alla uppsetningu þar sem hann er grafískur hönnuður að mennt. Um miðbik ársins 2021 tók Guðmundur, sonur minn, að sér útgáfustjórnun á verkinu. Við þýddum ljóðin með helstu áherslum og útskýringum yfir á ensku fyrir Jérémy. Í byrjun febrúar á þessu ári sendi hann okkur fyrstu uppköst af myndunum og sjá má nokkur þeirra fremst í bókinni. Þann 29. mars var svo síðasta myndin tilbúin og um það leyti voru vísurnar tilbúnar. Uppsetning á bókinni var í kjölfarið keyrð í gang og Prentmiðlun ehf. fékk hana til loka frágangs og prentunar í júní. Bækurnar komu svo til landsins núna í júlí.“

Af hverju valdir þú þetta efni?
„Ég fékk þá hugmynd allt í einu að semja að gamni vísur um dýr. Hugmyndin þróaðist svo út í að efnið yrði fræðandi um dýrin sjálf, heiti þeirra og umhverfi sem og að viðhalda þessum menningararfi okkar, vísnaforminu. Því má segja að áhugamál mín sameinast, þ.e. kveðskapurinn og kennarinn í mér,“ segir Alfreð sem kveðst ekki hafa haft neina sérstaka fyrirmynd að bókinni en hugmyndin hafi þróast síðustu árin.

Eins og að framan greinir er bókin nýkomin út en pantanir þegar byrjaðar að berast þeim feðgum sem segjast ánægðir með viðtökurnar. Segist Alfreð vilja sjá bókina nýtta til kennslu í íslensku og fleiri námsgreinum innan grunnskóla, ekki síður en til yndislesturs á heimilum.

Hundurinn Húni

Ljós og fagur hundur heitir,
Húni sá vel nafnið ber.
Eyrum vel uppbrettum beitir,
brattur oft um hlaðið fer.

Ærin Unda
Unda dygg ein ærin heitir,
með ullar þel og togið sítt.
Fimum stuttum fótum beitir,
fer um haga og jarmar títt.

-----

Bókin er einlæg og falleg og á erindi
til allra aldurhópa.

Ertu með hugmynd að næstu bók?
„Já, ég er með í bígerð að gefa út ljóðabók og hef ég undirbúning hennar á næsta ári, þegar ég er búinn að fylgja þessari eftir,“ segir í Alfreð í lokin en áhugasömum er bent á að frekari upplýsingar um verkið má finna á Fésbókarsíðunni Dýrin á Fróni þar sem einnig er hægt að panta bókina. Þá má einnig senda inn pöntun á tölvupóstfangið ljodakver@gmail.com eða hafa samband við höfundinn í síma 8650819.

Eins og segir í inngangi viðtalsins verður útgáfufögnuður bókarinnar haldinn laugardaginn 27. ágúst nk. kl. 16, í sal Árskóla á Sauðárkróki. Öll þau sem hafa áhuga á að koma og kynna sér bókina og næla sér í eintak eru hjartanlega velkomin, segir Alfreð, og bendir á að í boði verður kaffi og kruðerí í tilefni dagsins.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir