Dýrin í Hálsaskógi birtast í Miðgarði
Það verður mikið um dýrðir í Miðgarði á morgun laugardag nánar til tekið klukkan tvö þegar yngri nemendur í Varmahlíðarskóla munu stíga á stokk en krakkarnir hafa undan farið undir leikstjórn Helgu Rós Sigfúsdóttur æft leikritið Dýrin Hálsaskógi.
Að sýningu lokinni verður boðið upp á kaffiveitingar í skólanum. Aðgangseyrir er krónur 2000 fyrir fullorðna en börnin njóta sýningarinnar án aðgangseyris.