Dýrin í Hálsaskógi frumsýnd í dag
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
18.03.2014
kl. 09.04
Dýrin í Hálsaskógi í flutningi 10. bekkjar Árskóla verða frumsýnd í Bifröst á Sauðárkróki í dag. Leikstjóri er Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson. Allir nemendur 10. Bekkjar koma að sýningunni og hafa notið aðstoðar kennara, foreldra og ýmissa annarra sem leggja hönd á plóginn.
Frumsýnt verður í dag kl. 17:00 og önnur sýning verður kl. 20:00. Sýnt verður á sama tíma á miðvikudag og fimmtudag en um helgina verður sýnt kl. 16 báða dagana. Miðaverð er kr. 500 fyrir 5 ára og yngri, 1000 kr. fyrir grunnskólanemendur og 1500 kr. fyrir fullorðna.
Feykir mun skella sér á sýningu og fjalla um uppsetninguna í máli og myndum.