Edvard Börkur í Tindastól/Hvöt
Edvard Börkur Óttharsson fékk fyrir helgi leikheimild með Tindastóli/Hvöt en hann kemur að láni frá Val. Edvard Börkur er fæddur árið 1992 og er því á seinasta ári 2.flokks. Hann hefur lengstum leikið með Val og var lykilmaður í liði þeirra í 2.fl. Edvard Börkur er fjölhæfur leikmaður og kemur til að nýtast liðinu vel á lokasprettinum.
Foreldrar Edvards fluttu til Sauðárkróks í vor en þau eru Otthar Edvardsson og Sigríður Jóhannsdóttir.
/Tindstóll.is