Eflum Byggð fer vel af stað í Húnaþingi vestra

Fræðsluverkefnið Eflum Byggð í Húnaþingi vestra fer vel af stað en bjartsýnustu menn og konur höfðu gert ráð fyrir að námshóparnir yrðu tveir en þeir urðu á endanum fjórir. Námsmenn eru samtals 33 og þar af 9 í ensku.

Þrír hópar eru í tölvum fyrir byrjendur; tveir seinnipartinn tvisvar í viku og einn hópur á dagtíma. Kennarar eru Helga Hinriksdóttir, verkefnastjóri Eflum Byggðar og Oddur Sigurðarsson.

Á næsta hausti heldur fræðsluverkefnið áfram og þá verður kennd enska fyrir lengra komna og tölvur fyrir lengra komna. Ofan á þessa grunnþætti byggist síðan ferðamálfræði, þjónusta, átthagafræði og frumkvöðlafræði.

Fleiri námskeið eru á döfinni í Húnaþingi vestra og má þar nefna ljósmyndanámskeið og námskeið fyrir fullorðið fólk með lesblindu. Skráningar standa yfir, bæði í Farskólanum í síma 455-6010 og hjá Helgu Hinriksdóttur í síma: 864-6014.

Fleiri fréttir