Efri-Fitjar ræktunarbú ársins 2012

Uppskeruhátíð Hrossaræktarsamtaka Vestur - Húnavatnssýslu og hestamannafélagsins Þyts var haldin sl. laugardagskvöld. Samkvæmt heimasíðu Þyts voru veittar viðurkenningar fyrir 3 stigahæstu hross í öllum flokkum, ræktunarbú ársins og hæst dæmda hryssan og hæst dæmdi stóðhesturinn á árinu fengu farandbikara frá Hrossaræktarsamtökunum og síðan fengu stigahæstu knapar sínar viðurkenningar frá Þyt.

Efri-Fitjar var valið sem Ræktunarbú ársins 2012. Knapar ársins eru, í ungmennaflokki Jónína Lilja Pálmadóttir, í 2. flokki Vigdís Gunnarsdóttir og í 1. flokki Ísólfur L. Þórisson.

Uppskeruhátíð æskulýðsstarfsins hjá hestamannafélaginu Þyti var einnig haldin á laugardaginn en þar var farið yfir starf ársins og vetrarstarfið kynnt.

Á heimasíðu Þyts segir að allir þátttakendur hafi fengið viðurkenningu og smá gjöf frá æskulýðsnefndinni. Viðurkenningar voru veittar fyrir Knapa ársins í barnaflokki og unglingaflokki.

Karitas Aradóttir var valin Knapi ársins í barnaflokki og Helga Rún Jóhannsdóttir er Knapi ársins í unglingaflokki.

Myndir frá viðburðunum fá finna á heimasíðu Þyts.

 

Fleiri fréttir