Einar Ágúst ráðinn yfirhafnarvörður
feykir.is
Skagafjörður
25.06.2015
kl. 15.26
Einar Ágúst Gíslason hefur verið ráðinn í starf yfirhafnarvarðar hjá Skagafjarðarhöfnum. Hann hefur hafið störf en tekur formlega við stöðu yfirhafnarvarðar af Gunnari Steingrímssyni 1. október næstkomandi, þegar hann lætur af störfum eftir rúmlega 16 ára starf.
Á heimasíðu sveitarfélagsins Skagafjarðar er Einar Ágúst boðinn velkominn til starfa.