Einar Mikael og Töfrahetjurnar með sýningu á Króknum föstudag

Einar Mikael og Töfrahetjurnar ætla að leggja land undir fót og halda sýningar víða um Norðurland, með viðkomu á Sauðárkróki nk. föstudag. Að sögn Einars er sýningin troðfull af flottum sjónhverfingum og nýjum atriðum sem hafa aldrei sést áður á Íslandi.

„Viktoría töfrakona verður með mér en hún er fyrsta töfrakonan á Íslandi og er alveg rammgöldrótt. Það er mikið búið verið að spyrja mig hvenær ég kæmi aftur norður og mig hlakkar rosalega til að koma norður og leyfa öllum að upplifa ógleymanlega kvöldstund,“ segir í fréttatilkynningu.

Einar segir Viktoríu vera fyrstu töfrakonu Íslands sem kann margt fyrir sér í töfrabrögðum og er búinn að taka þátt í mörgum sýningum með mér um allt land. „Töfrabrögð eru ekki bara fyrir stráka og finnst mér mikilvægt að allar íslenskar stelpur geti átt frábæra fyrirmynd í töfrum, því okkur langar öllum að geta gert ótrúlega hluti,“ segir hann.

Sýningin verður í sal Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og hefst kl. 19:30. Miðaverð á sýninguna er 2.000 kr. við hurð en hægt er að fylgjast Einari Mikael og Töfrahetjunum á facebook.

http://youtu.be/c9-FwJBTjig

Fleiri fréttir