Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan
Þessa dagana standa yfir æfingar á leikritinu Einn koss enn og ég segi ekki orð við Jónatan eftir Marc Camoletti. Það er leikfélag Ungmennafélagsins Grettir í Miðfirði sem sér um að koma leikritinu á fjalirnar.
Leikritið fjallar um Jónatan og konur sem hann umgengst ásamt Róberti vini sínum og eins og gerist í góðum försum þá má ætla að misskilnings gæti í samskiptumunum við kvenfólkið og skemmtilegar áætlanir vegna þeirra fari út um þúfur.
Á Húnaþingsblogginu segir að æfingar hafi nú staðið yfir á um þriðju viku en frumsýningin sjálf verður föstudagskvöldið 25. mars næstkomandi. Önnur sýning er svo áætluð sunnudagskvöldið 27. mars.
Með hlutverkin í leikritinu fara:
- Jónatan - Gísli Grétar Magnússon
- Róbert - Þórarinn Óli Rafnsson
- Herdís - Guðbjörg Inga Guðmundsdóttir
- Hafdís - Ingibjörg Jónsdóttir
- Hjördís - Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
- Vigdís - Guðrún Sigríður Hálfdánardóttir