Eiríkur Rögnvaldsson hlaut heiðursverðlaun DV
Skagfirðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson sem starfaði lengi sem prófessor hjá Háskóli Íslands hlaut heiðursverðlaun DV, fyrir framlag til íslenskra málvísinda og tungu. Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenti Eiríki heiðursverðlaunin hátíðlega athöfn sl. föstudag í höfuðstöðvum Frjálsrar fjölmiðlunar.
Í umsögn dómnefndar sagði:
„Íslensk menning væri ekki til ef ekki væri fyrir tungumálið. Fáir ef nokkrir hafa eflt íslenska málvitund og hjálpað til við að halda tungumálinu lifandi og Eiríkur Rögnvaldsson. Eiríkur kenndi málvísindi og íslensku við Háskóla Íslands í 37 ár, 25 af þeim sem prófessor. Nú nýtur hann lífsins sem emerítus og getur stoltur litið til baka yfir farsælan feril. Auk kennslu hefur hann skrifað fræðigreinar og bækur um málfræði, hljóðfræði og annað sem tengist íslenskri tungu. Eiríkur er margverðlaunaður og hlaut meðal annars riddarakross hinnar íslensku fálkaorðu árið 2017. Eiríkur hefur ávallt verið meðvitaður um að tungan verði að aðlagast til að lifa af. Hefur hann því til dæmis beitt sér fyrir eflingu tungumálsins í hinum stafræna heimi og tekið inn nýtt persónufornafn inn í beygingarfræðina til að ná utan um fólk sem skilgreinir sig sem kynsegin. Framlag Eiríks til íslenskrar menningar er því ómetanlegt.“
Sjá nánar á vef DV
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.