Eistu, nýru og vambir til Asíu

Markaðir í Asíu eru að opnast fyrir ýmsum hliðarafurðum frá sláturhúsum og fiskvinnslum á Íslandi en þar er aðallega um vörur sem ekki fara á innanlandsmarkað nema þá í fóðurframleiðslu eða urðun.

 

-Asíuútflutningurinn hefur verið að þróast hjá okkur síðustu þrjú á. Aðal vandamálið í dag, til þess að láta það ganga upp, er að við erum svo litlir fyrir þennan markað. Þess vegna höfum við reynt að fá aðra sláturleyfishafa í lið með okkur til þess að búa til stærri köku til að bjóða, segir Ágúst Andrésson forstöðumaður Kjötafurðastöðvar KS en í Feyki sem kemur út í dag er ýtarlegt viðtal við hann um ýmis mál tengd þessum geira. Þar kemur meðal annars fram að búið sé að ganga frá ákveðnu samkomulagi við asíska kaupendur um ákveðið magn þá aðallega af slögum með beini. -Svo kemur inn í þetta ýmiss afskurður og svo hliðarafurðir aðrar eins og eistu, nýru, vambir og tittlingar væntanlega og sinar sem koma frá úrbeiningu á frampörtum, talsvert af beinum bæði hryggja- og síðubeinum, segir Ágúst.

Fleiri fréttir