Eitt tilboð barst

Eitt tilboð barst í festun og yfirlögn Þverárfjallsvegar, en tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni 14. maí sl. Um er að ræða festum með sementi ásamt lögn á tvöfaldri klæðningu á þremur vegarköflum, sem alls eru um 5 kílómetrar.Verkinu skal að fullu lokið 1. september nk. Bjóðandinn er Borgarverk ehf og hljóðar tilboðið upp á 62.474.000, sem er 96,6% af kostnaðaráætlun.

Fleiri fréttir