„Ekki hægt að forðast óheppni“

Anup Gurung er búsettur í Varmahlíð í Skagafirði en hann kemur frá Nepal. Hann hefur dvalið hér á landi undanfarin 15 ár í sjö til níu mánuði á hverju ári. Hann er þaulvanur kayak ræðari og er það hans aðal starf, en einnig tekur hann ljósmyndir og myndbönd og hannar vefsíður.

Anup flaug til Nepal eftir að jarðskjálftinn reið þar yfir 26. apríl sl. til að hjálpa fólki í neyð og var þar í um þrjár vikur. Blaðamaður Feykis hafði samband við Anup þegar hann var staddur þar ytra.

Vistum komið til fólksins sem býr á þeim svæðum sem fóru illa út úr jarðskjálftunum í Nepal. Ljósm./úr einkasafni. Vistum komið til fólks á þeim svæðum sem fóru illa út úr jarðskjálftunum í Nepal. Ljósm./úr einkasafni.

Anup sagði ástandið í Nepal hræðilegt og helst líkjast stríðssvæði. Sérstaklega frá skjálftamiðju Gorkha til Dolakha í austri.

„Fólkið hérna er ennþá í mjög miklu áfalli og ráðvillt. Flestir hafa misst allt og eiga ekki pening til að byrja upp á nýtt. Það munu mjög margir þurfa sálfræðihjálp til að komast yfir þetta.“.

Anup segir frá upplifun sinni af heimferðinni til aðstoðar samlanda sinna og æskuárunum í Nepal í Feyki vikunnar.

Fleiri fréttir