Ekki sátt um styttingu opnunartíma sundlauga
Nýverið var íbúum Skagafjarðar tilkynnt um breyttan opnunartíma á sundstöðum í héraðinu. Ekki eru allir sáttir við þá ráðagerð og heyrst hefur að viðskiptavinir sundlaugarinnar í Varmahlíð séu einkar ósáttir. Flestir fara í sund eftir kvöldmat segir ósáttur íbúi á svæðinu.
Það er stytting opnunartímans eftir kvöldmat sem ósættinu veldur en til skamms tíma var opið til klukkan 21, en lengi vel þar á undan til 21:30, samkvæmt íbúa svæðisins sem hafði samband við Feyki. Telur hann að nú sé búið að gera þeim mörgu viðskiptavinum sem hafa verið að koma eftir kvöldmat eða gegningum í sveitum afar erfitt fyrir þar sem þeir sækja sundlaugina á þeim tíma. Þá hefur meðferðarstofnunin á Háholti verið stór viðskiptavinur sundlaugarinnar og segir Ari J. Sigurðsson forstöðumaður þess, að þessi breyting hafi gríðarleg áhrif á starfsemi þeirra þar sem farið er samkvæmt dagskrá á þessum tíma í sund. Samkvæmt heimildum Feykis er verið að undirbúa undirskriftarsöfnun á stór Varmahlíðarsvæðinu til að mótmæla þessum gjörningi Sveitarfélagsins.
Á síðasta fundi byggðaráðs lagði Sigurjón Þórðarson fulltrúi Frjálslynda fram fyrirspurn til ráðsins um styttan opnunartíma Sundlaugar Sauðárkróks og vildi fá að vita hvað myndi sparast háar fjárhæðir á mánuði við þá aðgerð.
Þá óskaði hann eftir því að fá yfirlit yfir heildarlaunakostnað Sveitarfélagsins Skagafjarðar allra fastra starfsmanna á "frístundasviði" á árinu 2011 og hversu marga mánuði viðkomandi var í vinnu.