Ekki tókst að klára stjórnarmyndun

Auka aðalfundur Knattspyrnudeildar Tindastóls var haldinn í Vallarhúsinu Sauðárkróki mánudaginn 1. desember sl. Á fundinum fóru miklar og góðar umræður fram um starfið, að sögn Ómars Braga Stefánssonar formanns, og var vel mætt á fundinn. 

„Mikið hefur áunnist í fjármálum og mikill viðsnúningur frá undanförnum árum og mikilvægt er að halda þeirri góðu vinnu áfram,“ sagði Ómar Bragi í samtali við Feyki. Því miður var ekki hægt að klára stjórnarmyndun á fundinum og var því ákveðið að fresta fundi og vinna að því verkefni að fá gott fólk inn í starfið.

Þær fregnir hafa einnig borist frá knattspyrnudeildinni að Guðjón Örn Jóhannsson hefur sagt starfi sínu lausu sem þjálfari Mfl. kvenna og ekki hefur verið gengið frá samningum við Dúfu Dröfn Ásbjörnsdóttur aðstoðarþjálfara. Meistaraflokkur er því án þjálfara sem stendur.

Fleiri fréttir