Ekki vitað um foktjón í Skagafirði

Að sögn lögreglunnar á Sauðárkróki hefur ekki verið tilkynnt um nein foktjón til hennar eftir óveður næturinnar en þó sagðist yfirlögregluþjónn hafa séð girðingu sem hafði fokið við Freyjugötu. Hvað helgina varðar þá er hún ein af þeim rólegri í minnum lögreglunnar sem einungis einu sinni var kölluð til um helgina og þá vegna lausagöngu hrossa.

Fleiri fréttir