Eldur í Húnaþingi hófst í gær

Í gærkvöldi var opnunarhátíð Elds í Húnaþingi eða Unglist 2012. Það hófst með því að eldurinn var tendraður og svo kom hljómsveitin Mirra og flutti nokkur frumsamin lög eftir hljómsveitarmeðlimi. Síðan var boðið upp á kjötsúpu sem var í boði Reykjaskóla og Guðmundur frá Neðra Núpi spilaði á harmonikku og Jónína  frá Kolugili steig dans.

Nytjamarkaðurinn var opin og sjoppa var á staðnum og svo teiknaði Birgir frá Sporði skopmyndir af þeim sem það vildu. Þá voru haldnir klassískir tónleikar í kirkjunni sem voru hluti af vígsluathöfn á píanói sem kirkjan hefur fest kaup á.

Í dag verður mikið um að vera á Hvammstanga en dagskrá hefst klukkan 10 með leikjadegi á Mjólkurstöðvartúninu. Svo rekur hver atburðurinn annan fram á kvöld.

Dagskrána er hægt að nálgast HÉR

Meðfylgjandi myndir tók Anna Scheving.

.

Fleiri fréttir