Eldur í Húnaþingi í næstu viku

Nú styttist í það að unglistahátíðin Eldur í Húnaþingi 2012 verði  sett en hún hefst miðvikudaginn 25. júlí. Dagskráin er spennandi fyrir alla en allskyns íþróttir og tónlistarflutningur er áberandi þáttur hátíðarinnar. Útvarp Unglist verður starfandi og fer í loftið mánudaginn 23. júlí á fm 103,7.

 

Hægt er að nálgast dagskrána á rafrænu formi á Norðanátt.is eða með því að smella HÉR. Þá er Eldurinn að sjálfsögðu kominn á Fésbókina.

Dagskrá Elds í Húnaþingi 2012

Miðvikudagurinn 25. júlí einkennist af opnunarhátíðinni og tónlistarveislu í Hvammstangakirkju.

Fimmtudaginn 26. júlí er leikjadagur á Mjólkurstöðvartúninu, listasýning, sirkusnámskeið, borðtennis, skotbolti, fjallaskokk, dómurum í hverfakeppni mútað, tónleikar í Óríon með ÚlfurÚlfur, Melló Músíka og svo tónleikar í Félagsheimilinu Hvammstanga með Lovely Lion og ÚlfurÚlfur.

Föstudaginn 27. júlí verður förðunarnámskeið, heimsmeistaramót í Kleppara, tónleikar í Kirkjuhvammi með Miðtúnsbandinu, Ásgeir Trausti og Ylja í Borgarvirki og Jet Black Joe og Bedford Splinters í Félagsheimilinu Hvammstanga.

Lokadagur hátíðarinnar, laugardagurinn 28. júlí, er sannkallaður fjölskyldudagur með sápurennibraut í Tommabrekkur, fjölskyldudagskrá á Bangsatúni, fyrirtækjakeppni, sápubolta á Mjólkurstöðvartúninu og fótboltaleik í Kirkjuhvammi. Um kvöldið verða svo dansleikir með Buff í Félagsheimilinu Hvammstanga.

Fleiri fréttir