Eldur í Húnaþingi - Undirbúningur að hefjast

Nú er farið að huga að undirbúningi fyrir Unglistahátíðina Eldur í Húnaþingi og er verið auglýsa eftir sjálfboðaliðum þessa dagana til að vinna að hátíðinni. Áhugasamir einstaklingar og hagsmunaaðilar er hvattir til að hafa samband.

„Hátíðin hefur tekist mjög vel undanfarin ár og lífgað skemmtilega uppá sveitarfélagið. Til þess að svo verði áfram verður að fást fólk til starfa í þessa vinnu,“ segir á heimasíðu Norðanáttar.

Þeir sem hafa áhuga á að vera í nefnd er bent á að hafa samband við Elísu sem fyrst í síma 847 8397.

 

Fleiri fréttir