„Elsku Skagafjöður og allt fólkið sem þar býr: Fyrirgefðu!“
Birgitta Jónsdóttir biður Skagfirðinga afsökunar á Facebook síðu sinni í dag. Þar endurbirti hún færslu frá 18. maí sl. þar sem hún segist hafa orðið var við að ummæli hennar, við grein sem hún deildi af fréttamiðlinum Stundinni, hafi valdið íbúum Skagafjarðar hugarangri og vanlíðan.
Tilefnið er ályktun byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar, sem greint var frá á Feyki.is í gær, þar sem þess var krafist að hún bæðist opinberlega afsökunar á ummælum sínum: „Skagafjörður er Sikiley Íslands,“ sem hún lét falla á Facebook 14. maí.
„Ég hélt að ég hefði beðist forláts á orðum mínum með greininni en hef ekki kveðið nægilega fast að orði: „Kannski er þetta djúpt í árina tekið, kannski hef ég móðgað einhverja eða sært. Það var ekki ætlunin.“ En hér kemur það hreint og beint: Elsku Skagafjöður og allt fólkið sem þar býr: Fyrirgefðu! <3,“ segir Birgitta.
Í pistlinum segist hún jafnframt elska Skagafjörð en amma hannar var fædd og uppalin á Reykjum á Reykjaströnd.
„Ég elska sögurnar sem amma sagði mér um Glerhallavík og hvernig hún í einsemd sinni lærði að hlusta á og verða vinur fugla og kóngulóa. (Henni var mikið strítt vegna þess að pabbi hennar dó og föðurlaus börn voru gjarnan lögð í einelti í gamla daga) Langalang afi minn var harður í horn að taka, eineygður frumkvöðull með gott skopskyn og Reykir voru bærinn hans,“ segir Birgitta í færslu sinni.
Færslu Birgittu í heild sinni má lesa hér.