Elvar Ingi og Hjörtur sigruðu Opna Skýrr mótið
Opna Skýrr mótið í golfi fór fram sunnudaginn 28. ágúst s.l. á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Keppt var með Greensome fyrirkomulagi þar sem að tveir/tvö keppa saman. Alls voru keppendurnir 56 eða 28 pör og komu keppendur víðsvegar frá af landinu. Það voru feðgarnir Elvar Ingi og Hjörtur Geirmundsson sem fóru með sigur af hólmi með 67 höggum.
Úrslit urðu sem hér segir:
1. Elvar Ingi Hjartarson og Hjörtur Geirmundsson GSS – 67 högg
2. Haraldur Friðriksson og Guðmundur Ragnarsson GSS – 69 högg
3. Guðmundur Þór Árnason og Ólöf Hartmannsdóttir GSS – 70 högg
4. Björn Sigurðsson og Ingibjörg Ólöf Guðjónsdóttir GSS – 70 högg
5. Ásgeir Einarsson og Sigríður Elín Þórðardóttir GSS – 72 högg
Síðan voru veitt tvenn aukaverðlaun:
Lengsta upphafhögg á 9/18 braut hlaut Fylkir Þór Guðmundsson GÓ.
Næst holu á 6/15 braut var Ingvi Þór Óskarsson GSS – 152 cm.