Elvar Páll kallaður heim í Breiðablik

Tindastólsmenn verða að bíta í það súra epli að missa Elvar Pál Sigurðsson, einn besta leikmann liðsins það sem af er sumri, heim í herbúðir Breiðabliks en Elvar var lánaður til Tindastóls rétt í þann mund sem félagaskiptaglugginn lokaðist í vor. Leikur kappinn því ekki meira með Stólunum í sumar.

Haft er eftir Ólafi Kristjánssyni þjálfara Blika að hann þurfi á öllum sínum leikmönnum að halda á næstunni en Breiðablik er í góðum málum í Pepsi-deildinni, bikarnum og hafa verið að gera vel í Evrópu og því talsvert álag á leikmenn.

Ekki það að Elvars nýtur ekki lengi við því hann er í námi í Bandaríkjunum og fer þangað í byrjun ágústmánaðar. Elvar hefur verið drjúgur í liði Tindastóls, gert fimm mörk og er vel spilandi.

Næstu leikir Stólanna eru gegn Völsungi á Húsavík nú á laugardaginn kl. 16:00 og síðan gegn Þrótti hér á Króknum miðvikudaginn 31. júlí kl. 18:00.

Fleiri fréttir