Emese Vida til liðs við leikmannahóp Stólastúlkna í körfunni

Stjórn Körfuknattleiksdeildar Tindastóls hefur samið við hina serbnesk-ungversku Emese Vida um að leika með kvennaliðinu næstkomandi vetur. Vida er 29 ára og kemur með dýrmæta reynslu í ungt og efnilegt Tindastólsliðið. Hún er líka 1,90m á hæð og kemur því inn í lið Tindastóls með sjaldséða sentimetra.

Á síðustu leiktíð spilaði Vida með Milano í ítölsku deildinni en tvo tímabil þar áður með liði Snæfells í íslensku úrvalsdeildinni. „Við bjóðum Emese Vida hjartanlega velkomna í Skagafjörðinn og hlökkum til að sjá hana í Tindastólsbúningnum í haust,“ segir í tilkynningu á Facebook-síðu Körfuknattleiksdeildar Tindastóls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir