Endurskoða fyrirkomulag fæðismála

Skagfirskur matur ehf. lagði fram erindi á síðasta fundi  fræðslunefndar Skagafjarðar þar sem óskað var eftir framlengingu á samningi um framleiðslu hádegisverðar fyrir Ársali eldra stig. Fræðslunefnd tók vel í erindið og samþykkir að leita einnig eftir framlengingu á samningi við Videosport ehf. um framleiðslu hádegisverðar fyrir Ársali yngra stig.

Nefndin samþykkir einnig að endurskoða fyrirkomulag fæðismála fyrir leik- og grunnskóla á Sauðárkróki þegar samningur við  Skagfirskan mat ehf. um framleiðslu hádegisverðar fyrir Árskóla rennur út þann 31. maí 2012

Fleiri fréttir