Þórður Bragi og Köggur eru bestu vinir – Varúð! Krúttlegt myndband
Á bænum Ríp í Hegranesi fæddist, öllum að óvörum, hestfolald fyrir tveimur vikum. Móður og folaldi var komið á hús og mikil vinátta hefur tekist milli folaldsins og Þórðar Braga fjögurra ára gutta á bænum. Óhætt er að segja að myndbandið sé það krúttlegasta sem sést hefur lengi.
Sigurlína Magnúsdóttir, móðir Þórðar Braga, segir að engan hafi grunað að hryssan væri fylfull og því kom það öllum á óvart þegar hún kastaði folaldinu á aðventunni. „Við náðum í merina og folaldið og settum inn í hús. Þau eru saman í stíu og setjum þau út og leyfum folaldinu að koma fram á gang og þar leika þeir sér saman,“ segir Sigurlína og bætir við að frábært sé að fylgjast með þeim. „Folaldið eltir hann mikið frekar en okkur. Þórður Bragi fékk að skíra folaldið og valdi hann nafnið Köggur sem er ein uppáhalds fígúran í Hvolpasveit. Einstakt að fylgjast með þeim og frábært fyrir þá báða að hafa hvorn annan. Hann biður um að koma með í hesthúsið og kíkja á Kögg vin sinn.“
Sjón er sögu ríkari.
Þessir vinir bræða mann alveg!!