Slökkviliðsmenn heimsækja skólana í Skagafirði

Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna er í eldvarnaátaki um þessar mundir í samstarfi við öll slökkvilið landsins. Þá heimsækja slökkviliðin öll börn í 3. bekk og fræða þau um eldvarnir heimilanna og eru slökkviliðsmenn frá Brunavörnum Skagafjarðar búnir að heimsækja alla skólana í Skagafirði.
„Það er einstaklega gaman og gefandi að heimsækja börnin og fræða þau um þessi mál því þau eru svo lifandi og einlæg. Þau spyrja mikið og hafa frá mörgu að segja,“ segir Vernharð Guðnason slökkviliðsstjóri í samtali við Feyki.
Vernharð segir jafnframt að það sé ósk slökkviliðsmannanna að aldrei reyni á þann fróðleik sem þeir deili með krökkunum og að aðventan og jólin verði öllum gleðileg og slysalaus.