Enn ein aukasýning, sú allra síðasta!

Nú hefur LS sýnt gamanleikinn Svefnlausa brúðgumann níu sinnum og þar af í sjö skipti fyrir fullu húsi, en alls hafa hátt á áttunda hundrað manns séð leikritið. -Vegna frábærrar aðsóknar hefur stjórn LS ákveðið að bæta við einni aukasýningu í viðbót við hinar tvær, en það verður allra, allra síðasta sýningin samkvæmt tilkynningu frá LS.

Hún verður á sunnudagskvöldið 22. maí kl. 20:30, miðasala eins og venjulega í Kompunni virka daga 11-18 og í síma 849-9434. Enn eru nokkrir lausir miðar á miðvikudagskvöldið 18. maí kl. 20:30.

Leikfélagið vill minna félagsmenn Starfsmannafélags Skagafjarðar á að þeir eiga tvo fría miða á sýninguna, en meðlimir Starfsmannafélags Heilbrigðisstofnunarinnar eiga einn boðsmiða og geta keypt fleiri miða á hópafslætti.  Leikhússmatseðill Ólafshúss er einnig enn í gildi.

Sjá nánar á www.skagafjordur.net/ls

Fleiri fréttir