„Erfitt að spá – sérstaklega um framtíðina,“ segir Axel Kára
Landsliðsmaðurinn eitilmagnaði, Axel Kárason, lét ekki sitt eftir liggja og var snöggur að svara laufléttum spurningum Feykis um einvígi Tindastóls og KR sem er í þann mund að hefjast. Axel hefur komið víða við í körfunni en auk þess að spila með Stólunum hefur hann til að mynda verið í Skallagrímspeysunni og rótast nú um dönsk parket með Værlöse Basketball Klub. Ef einhver er svo ekki að átta sig á því að Axel er sonur Kára Mar, aðstoðarþjálfara Tindastóls, þá er náttúrulega ekki allt í lagi.
Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? -Þetta verður alvöru stórhátíð. Ég er nú venjulega alltaf frekar hlynntur óvæntum úrslitum og sigri þeirra sem minna mega sín, en þegar mitt eigið félag er annað af 2 bestu liðum landsins þá tek ég að sjálfsögðu vinkilbeygju í þeim málum. Það verður áhugavert að sjá hvernig leikurinn þróast í kvöld, miðað við að hvorugt liðið kemur á fljúgandi siglingu inn í úrslitin miðað við hvernig lokaleikirnir voru (tek fram að ég gat einungis lesið mér til um 5. leik KR). Ég veit hins vegar ekki hver staðan er á Pavel, en vona að hann sé í góðu standi, því þetta er alltaf miklu skemmtilegra þegar bæði lið ganga á öllum sílindrum.
Hefurðu náð að fylgjast með gengi Stólanna í vetur? -Já, ég hef verið nokkuð duglegur að sjá þá leiki í vetur, þökk sé Viggó Jóns og Pálma af Svaðastaðakyninu. Ég get nú ekki sagst vera mjög hissa á gengi okkar manna, vitandi að leikmannahópurinn væri sterkur og það væri búið að vera unnið gott starf í uppbyggingu félagsins síðastliðin misseri. Almennt séð er ég mjög ánægður með að þeim hefur tekist að halda dampi eftir áramót, sem er alltaf erfitt fyrir ungt lið. Ef dýpra er kafað, þá er það sem heillar mig mest er að þjálfarinn (já eða þjálfarateymið, verður maður ekki að segja það) hefur fundið ólík hlutverk fyrir flesta af þeim leikmönnum sem eru spila margar mínutur í hverjum leik. Það er góð leið til árangurs.
Uppáhalds leikmaður í KR? -Þetta er nú frekar erfið spurning. Ég á auðvitað marga góða vini og landsliðsfélaga í KR-liðinu, eins og Brynjar Björns, Finn Magnússon, Pavel Ermolinski og séntilmennið Helga Má Magnússon. En maður velur sér víst vini en ekki ættingja, og því er minn uppáhaldsmaður, elskulegur eiginmaður systur minnar, Ólsarinn Magni Hafsteinsson. Hann er líka eini KR-ingurinn sem gaf mér jólagjöf síðast og það telur.
Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Erfitt er að spá, sérstaklega um framtíðina, sagði vitur maður eitt sinn. Því ætla ég að segja að ég vona að þetta fari 3-1 fyrir Tindastól því það passar best við vaktaplanið hjá Jóhannesi á Þorleifsstöðum út í Steinullarverksmiðju.
Á ekkert að fara að skila sér heim? -Jú, bara um leið og Stefán formaður býður mér almennilegan samning! Nei, maður má ekki segja svona. Ég á einn vetur eftir í skólanum og svo verður stefnan vonandi tekin á sveit hins eilífa sumars.