Eru foreldrar að misskilja vistunartíma?
Á heimasíðu Ársala á Sauðárkróki veltir starfsfólk leikskólans upp þeirri spurningu hvort um misskilning geti verið að ræða varðandi vistunartíma barnanna og / eða opnunartíma leikskólans.
Þar kemur fram að nokkuð hafi verið um að börn séu sótt of seint. Minnir starfsfólk á að yngra stigið lokar kl 16:15 og þá eiga öll börn og foreldrar að vera komin út úr leikskólanum. Eldra stigið lokar kl 17:15 og þá eiga börn og foreldrar sömuleiðis að vera komnir út úr húsi. Ennfremur er mikilvægt að þau börn sem eiga vistunartíma styttra fram á daginn séu einnig sótt á tilsettum tíma, þ.e. þegar þeirra vistunartíma lýkur. Eru foreldrar minntir á að heimilt er að innheimta aukagjald; 1000 krónur ef barn er sótt of seint þrisvar í sama mánuði