Eryk Watson til Tindastóls
Körfuknattleiksdeild Tindastóls hefur samið við bandaríska leikmanninn Eryk Watson, um að spila með liðinu í Iceland-Express deildinni á næsta keppnistímabili. Eryk leikur stöðu bakvarðar og er ætlað að stýra leik Tindastóls.
Eryk sem er 190 cm á hæð, lék með Maryville háskólanum í Tennessee og útskirfaðist þaðan nú í vor. Á síðasta tímabili var kappinn með 24.1 stig að meðaltali í leik, tók 4.8 fráköst og var með rúmlega tvær stoðsendingar að meðaltali. Þá hitti hann úr 45% skota sinna, auk 47% þriggja stiga skota og setti niður um 80% af vítaskotum sínum.
Eryk er væntanlegur á Krókinn um mánaðarmótin ágúst-september