Eyfi með tónleika í Hvammstangakirkju
Þann 17. apríl s.l. varð Eyjólfur „Eyfi“ Kristjánsson fimmtugur. Af því tilefni er hann nú á mikilli tónleikaferð um Ísland og nú er komið að Hvammstanga en í kvöld mun hann skemmta gestum í Hvammstangakirkju og hefjast tónleikarnir kl. 20:30.
Eyfi fer yfir 30 ára feril sinn sem tónlistarmaður, spjallar á léttum nótum við tónleikagesti og flytur öll sín þekktustu lög: Nína - Álfheiður Björk - Dagar - Kannski er ástin Ég lifi í draumi - Danska lagið - Góða ferð o.m.fl.
Aðgangseyrir er kr. 2.000 og fer miðasala fram við inngang