Fær ekki greiddan út Lottóvinninginn

Finni Guðjóns.
Finni Guðjóns.

Finni Guðjónsson, eða Finni Helgu eins og flestir þekkja hann, hafði samband við Dreifarann og sagðist ósáttur við Lottó. Hann hringdi strax suður um leið og hann frétti af vinningnum en allt kemur fyrir ekki. „Þau bara neita að greiða mér út vinninginn þetta ... þetta ... þetta fólk!“

-Ég er búinn að panta ferð utan fyrir okkur hjónin til Tenerife og er að láta taka garðinn í gegn. Þetta fólk getur ekki bara gengið svona á bak við orðin sín...

Svona hefst bullfréttin um hann Finna Guðjóns en hún er liður í Dreifaranum sem ætlaður er til að kæta fólk í amstri dagsins. Á gömlu síðu Feykis.is var dreifarinn áberandi á forsíðu og mikil pressa á höfunda að koma með nýtt efni. Gekk það framar vonum lengi vel en þegar annar hugmyndasmiðanna flutti suður yfir heiðar var eins og hann tæki sköpunarkraft hins með sér. En nú er sem sagt búið að efna í Dreifara og er það fagnaðarefni.

Dreifarana er hægt að nálgast í undirflipa efst á síðunni, smellt er á strikin þrjú sunnan við flipann „Ljósmyndir“. Þar er einnig að finna Hina brottflognu, Rabb-a-babb, Veðurspána og FeykiTV.

Fleiri fréttir